Blogg
26.1.2010
Þorrablót
Kæru Mímrar
...það verður mikið að gera þessa helgi!
Á föstudaginn ætlum við á deit með Torfhildi í Valhöll að þiggja veigar frá ungum sjálfstæðismönnum.
Á laugardaginn er síðan hin árlega Rask-ráðstefna (sem er auglýst betur hér að neðan)
...og um kvöldið er komið að hinu alræmda Þorrablóti!
Í ár verður Þorrablótið haldið á heimili formanns vors
Leifsgötu 24, sérinngangur á hægri hlið
Sem fyrr minnir Mímir á að kettir eru á heimilinu þannig munið eftir ofnæmispillunum!
Mæting er kl: 20:00
Á boðstólum verður hefðbundinn og óhefðbundinn þorramatur (og skolað niður með brennivíni!)
Mímisbjór verður seldur á 250 kr stk en annars hvetur Mímir fólk til að taka með eigin guðaveigar
baráttukveðjur,
Mímir föðurlandsvinur
E.S. Skráning í Vísó í Valhöll núna á föstudaginn fer fram á heimasíður Torfhildar www.torfhildur.blog.is
E.E.S. Mímir tekur það aftur fram að hann er ópólitískur með öllu en afar hrifinn af fríum veigum
Flettingar í dag: 42
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 169462
Samtals gestir: 53402
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 11:22:01
