Blogg
27.10.2009
Kósíkvöld Mímis
Kæru Mímrar!
Næstkomandi föstudag ætlum við að fagna því að vetur konungur er opinberlega genginn í garð. Við ætlum að fjölmenna á skauta í Skautahöllinni klukkan 18:00 og eftir það ætlum við að fjölmenna á aðalstaðinn í bænum, Tjarnargötu 34 (heimili ritara vor) og gæða okkur á nýbökuðum vöfflum og heitu kakó! Ef einhvern langar í Stroh í kakóið eða aðrar guðaveigar þá er alltaf gott að vera með pela í vasanum! ;)
Freyjuliðar eru velkomnir að njóta kósíkvöldsins með Mímrum.
Sjáumst!
Kveðja, Mímir skautadansari
E.S. Það kostar 700 krónur á mann að fara á skauta og eru þá skautarnir innifaldir. Við viljum biðja alla um að koma með pening á staðinn því tilboðið byggist á að við borgum öll í einu!

20.10.2009
Vísó #3: Orðabók Háskólans
Kæru Mímisliðar.
Nú er komið að þriðju vísindaferð vetrarins. Að þessu sinni er förinni heitið í Orðabók Háskólans.
Hjá Orðabók Háskólans er unnið að ýmiss konar fræðilegum og hagnýtum verkefnum sem snerta íslenskt mál og íslenskan orðaforða. Lögð er áhersla á rannsóknir tengdar orðum og orðasamböndum, rannsóknir á orðaforða og þróun hans, rannsóknir í orðabókafræðum og tungutækni. Allt þetta og meira til fá Mímisliðar að fræðast um.
Mæting er á Neshaga 16, þriðju hæð klukkan 17:00 föstudaginn 23. október.
Pláss er fyrir 15 mímra og fer skráning fram í athugasemdakerfinu hér að neðan. Skráningu lýkur formlega klukkan 12:00 á föstudag.
Athugið að Mímisliðar ganga fyrir og Ómímrar þurfa að greiða 500 krónu aðgangsgjald vilji þeir koma með.
Kveðja, Mímir orðavísundur

15.10.2009
Verkefnavika!
Sælir kæru Mímisliðar!
Hvernig er verkefnavikan búin að leika við ykkur?
Eruð þið búin að sitja frá morgni til kvölds lesandi fyrir skólann eða hafið þið sofið út alla daga og eytt kvöldunum í fjallgöngur???
Segið frá segið frá.....
Kveðja,
Mímir forvitni.
E.S. Myndir frá Landsvirkjun eru komnar á netið

6.10.2009
Vísó #2 og Oktoberfest
Guten Tag liebe Freunde!
Næsta föstudag verður heljarinnar dagskrá!
Skemmtunin hefst í vísindaferð nr. 2 í Landsvirkjun, þar sem við munum fræðast og drekka.
Að vísindaferð lokinni verður haldið villt tryllt teiti hjá Auði dritara með þýsku ívafi. Teitið verður aðeins upphitun fyrir hina árlegu Októberfest þar sem guðaveigar munu flæða.
Mímir tekur fram að þyrstir ættu að taka með sér nesti í teitið. Þeir sem vilja mæta beint í teitið geta mætt þangað kl: 20:00. Auður á heima á Tjarnargötu 34
Vísó
Mæting er í höfuðstöðvar Landsvirkjunar á Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík kl: 17:00
Pláss er fyrir 20 manns og fer skráning fram í athugasemdakerfinu hér að neðan. Skráningu lýkur formlega klukkan 16:00 á fimmtudag.
Athugið að Mímisliðar ganga fyrir og Ómímrar þurfa að greiða 500 krónu aðgangsgjald vilji þeir koma með.
Októberfest
Miðasala á Októberfest fer fram í helstu byggingum Háskólans daganna 6. til 9. okt. frá 11:30-13:30
Festival armband inn á alla hátíðina kostar aðeins 2500 kr
- gildir inn á alla 3 daganna eða 8. - 10. okt
- allir með armband fá ódýrari bjór yfir alla hátíðina
Frekari upplýsingar á www.oktober.is
Kveðja
Mímsi ölglaði

Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 169058
Samtals gestir: 53289
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 20:54:54