Ætlar þú að blæða fyrir gott málefni?

 Að sjálfsögðu

 Nei takk

 Má ekki gefa blóð

 Íhuga það


Sýna niðurstöður


 

Um okkur

Nafn:

Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum

Heimilisfang:

Árnagarður v/Suðurgötu

Kennitala:

610174-4269

Bankanúmer:

0137-26-011062

Tenglar

Blogg

30.9.2009

Vísó #1: Stúdíó Sýrland

Fyrsta vísindaferð vetrarins verður farin næstkomandi föstudag og er förinni heitið í Stúdíó Sýrland.

Sýrland er gamalgróið hljóðver sem nokkrir liðsmenn Stuðmanna stofnuðu en er núna samnefnari nokkurra fyrirtækja í hljóðvinnslu. Meðal verkefna Sýrlands er talsetning, hljóðritun á plötum og stórtónleikum. Í þessari heimsókn fáum við að kynnast starfsemi Sýrlands og munum við heimsækja þrjú hljóðver þeirra. Óskar Mímir því eftir að einhver gefi sig fram sem geti verið á bíl.

Mæting er í Vatnagarða 4 klukkan 17:00 föstudaginn 02. október. Húsið er ómerkt en fánar merktir Sýrlandi blakta nærri og eru bílar merktir fyrirtækinu á bílastæðinu.

Pláss er fyrir 15 mímra og fer skráning fram í athugasemdakerfinu hér að neðan. Skráningu lýkur formlega klukkan 12:00 á föstudag.

Athugið að Mímisliðar ganga fyrir og Ómímrar þurfa að greiða 500 krónu aðgangsgjald vilji þeir koma með.

Kveðja, Mímir vísundur

Skrifað 30.9.2009 kl. 18:44 af Mímir

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.9.2009

Nýnemafulltrúi fundinn! :D

Gleði gleði gleði!
Nú er Mímir ákaflega hamingjusamur!

Af hverju? Auðvitað af því að Mímir hefur fengið liðsauka í stjórnina, nýnemafulltrúinn er fundinn!
Nýnemafulltrúi vetursins 2009-2010 er Gunnhildur Jónatansdóttir.

Stjórn Mímis býður Gunnhildi innilega velkomna í hópinn! :D

Kær kveðja
Mímir ánægði

Skrifað 29.9.2009 kl. 15:20 af Mímir

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.9.2009

Spilakvöld

Kæru félagar!

Mímir ætlar að hafa æsispennandi spilakvöld þar sem aðalnúmerið er Fimbulfamb og hinn sívinsæli Æsti leikur! Önnur spil verða einnig með í för.

Mímir ætlar að bjóða upp á smá snakk og gotterí en mælir með að fólki komi með sínar eigin guðaveigar sé það í stuði fyrir slíkt!

Teitið verður haldið hjá Kötu (með fráblæstri) á Görðunum, nánar tiltekið á görðunum þar sem Fosshótel er á sumrin, við Suðurgötu 121.

Sjáumst!

Skrifað 23.9.2009 kl. 23:46 af Mímir

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.9.2009

Kæru vinir

Takk kærlega fyrir frábæra Haustferð og góða mætingu. Tekinn var aragrúi af myndum og er von á þeim á netið á næstu dögum og þá getið endurupplifað gleði helgarinnar!

Nú eru síðustu forvöð að næla sér í leikhúsmiða gegnum Mími og tryggja sér gleði og gaman í allan vetur! Það eina sem þið þurfið að gera er að senda Mími kennitölu ykkar, síma, nafn og hvaða sýningar þið viljið fara á og Mímir sér um restina!

Einnig vill Mímir biðja ykkur að fylgjast spennt með á síðunni á morgun en þá tilkynnir Mímir dagskrá föstudagsins!

Kær kveðja, Mímir leikhúsfíkill

Skrifað 22.9.2009 kl. 16:20 af Mímir

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.9.2009

Staðsetning

Þeim Mímisliðum sem ekki komust með í haustferðina er velkomið að koma í partí í skátaskálann Skátalund við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði kl. 20:00. Eftirfarandi kort sýnir leiðina þangað:

Leiðarlýsing:
Ef komið er frá Reykjavík er ekið eftir Reykjanesbraut fram hjá Setbergi og beygt til hægri þar sem hægt er að komast í Kaldársel og kirkjugarðinn. Farið er yfir brúna og áleiðis í Kaldársel. Rétt áður en vegurinn kvíslast í  tvennt, <Kaldársel | Kjóadalur>, er malarvegur til hægri merktur með skilti sem á stendur Skátalundur. Fylgið veginum, farið eftir öðru skilti og þá komið þið að skálanum.

Kv. Mímir

Skrifað 19.9.2009 kl. 16:46 af Mímir

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.9.2009

Haustferð Mímis!

Haustferð Mímis verður haldin núna næstkomandi laugardag 19. september og vænist Mímir til þess að allir, ungir sem aldnir, nýir sem gamlir mæti hressir og kátir!

Mæting verður á neðstu hæð í Árnagarði klukkan 12:30.
13:00 byrjar svo æsispennandi óvissudagskrá sem mun endast fram á rauða nótt!

Við mælum með að Mímrar skoði veðurspána eða jafnvel líti út um gluggann áður en þeir leggi af stað og taki með sér viðeigandi fatnað. Auk þess mælir Mímir með að allir taki með sér smekkleg föt því það er aldrei að vita nema maður þurfi á því að halda!

Mímir býður upp á mat og drykk en þeim sem þurfa guðaveigar yfir 9,5 prómillum eða eru einstaklega þyrstir er bent á að koma með að heiman!

Aðgangseyrir að ferðinni verður 1500 krónur fyrir Mímisliða en 2500 fyrir Ómímra en við lofum því að þetta verður algjörlega þess virði! Hægt er að leggja inn á reikning Mímis eða mæta með pening á laugardaginn. Setjið Haustferð sem skýringu og sendið rafræna kvittun gegnum netbankann á mimir@hi.is

Kennitala:
610174-4269

Bankanúmer:
0137-26-011062

Við biðjum fólk að gera ráð fyrir því að vera vant við látið fram á miðnætti en Mímir mun sjá til þess að allir komist heilu og höldnu í 101 Reykjavík áður en yfir lýkur.

Skráning fer fram hér í athugasemdakerfinu og lýkur stundvíslega klukkan 23:59 fimmtudagskvöldinu 17. september.

Kveðja Mímir leyndardómsfulli

E.S. enn er hægt að skrá sig í Mími

Skrifað 13.9.2009 kl. 16:17 af Mímir

Bein slóð á færslu

26 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.9.2009

Auka-aðalfundur og Borgarleikhúsið

Kæru Mímisliðir!

Takk Takk fyrir frábæra mætingu í Ferskmannagönguna!

Núna á föstudaginn, 11. september, verður haldinn auka-aðalfundur þar sem kosið verður í stöðu nýnemafulltrúa. Fundurinn verður haldinn á Hressó og mun hefjast klukkan 20:00. Að loknum kosningum mun við fjölmenna í teiti hjá Auði ritara. Þannig þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta í kosningu geta komið í teitið á Tjarnargötu 34: ) Mímir mælir með að fólk taki með sér guðaveigar;)
 Allir nýnemar eru hér með hvattir til að líta í eigin barm og íhuga framboð. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á mimir@hi.is fyrir klukkan 23:59:59 á fimmtudag.

Auglýsing birtist með framboðum í býtið á föstudag og hefst þar með kosningarbaráttan.

Mímir hefur hafið samstarf við Borgarleikhúsið um sölu á ungmennaáskriftakortum. Kortin kosta aðeins 4450 krónur og gilda á fjórar sýningar að eigin vali. Borgarleikhúsið býður upp á margar mjög spennandi sýningar í vetur, má þar til dæmis nefna Faust í uppsetningu Vesturports, Jesús litli, Fjölskyldan - ágúst í Osage-sýslu sem er eitt heitasta leikritið í dag og fleira og fleira spennandi!

Stjórnarmeðlimir Mímis munu á næstu dögum sitja í Árnagarði og á Háskólatorgi og taka við pöntunum, sem verða svo áframsendar til Borgarleikhússins sem mun hafa samband við viðkomandi. Einnig er hægt að senda Mími póst á mimir@hi.is með eftirfarandi upplýsingum:

                      *Nafn og kennitala
                      *símanúmer
                      *Val á fjórum sýningum
                      *kortanúmer, ef viðkomandi vill borga með korti

Að fara á eina sýningu hjá Borgarleikhúsinu kostar 3450, svo það er kjánalegt að kaupa ekki kort! :D

Kveðja Mímir leikhúsljón.

E.S. Mímir minnir á að nú er aðeins rúmlega vika í hina árlegu æsispennandi skemmtilegu haustferð. Munið að taka 19. september frá.... þið munið ekki sjá eftir því:D



Skrifað 8.9.2009 kl. 15:17 af Mímir

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.9.2009

Mímir kom, sá og sigraði

.... einn leik í æsispennandi spurningakeppni. Alls voru haldnar þrjár keppnir. Sú fyrsta gekk ekki alveg sem skyldi enda eingöngu upphitun. Í annarri keppni sýndu Mímisliðar sitt sanna eðli og sigruðu sálfræðinema með miklum yfirburðum!!! :D Í þriðju og síðustu keppninni virtist allt benda til þess að Mímir myndi sigra en í lokin tókst Fróða þó einhverra hluta vegna að bera sigur úr býtum.

Um fótboltamótið vill Mímir sem minnst segja.... en mun þó taka þátt af krafti í næstu handboltakeppni því eins og allir vita er fótbolti löngu kominn úr tísku og handboltinn orðinn hinn nýi fótbolti!

Kveðja,
Mímir íþróttahetja

E.S. Hlakka til að sjá alla í ferskmannagöngu á morgun klukkan 17:00 á kennaraskrifstofunni á fjórðu hæð í Árnagarði;)

Skrifað 3.9.2009 kl. 18:34 af Mímir

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.9.2009

Ferskmannaganga, fótboltamót og spurningakeppni

Ferskmannagangan góða!

Næsta föstudag, þann fjórða september, ætlar Mímis í sína árlegu Ferskmannagöngu til að bjóða nýnema velkomna í félagsskapinn.

Mæting er klukkan 17:00 á kennarastofuna á fjórðu hæð í Árnagarði þar sem við munum gæða okkur á gómsætum drykkjum, kynnast hvort öðru og jafnvel nokkrum kennurum! Næst á dagskrá er svo labb um Háskólasvæðið sem endar að lokum niðri í bæ.

Um kvöldið verður svo nýnemaball Háskólans haldið á Rúbín og verður góðærisþema allsráðandi.

Fótbolta- og spurningakeppni

Þrátt fyrir dræma skráningu gerðist Mímir svo kræfur að tilkynna eitt lið í fótboltakeppni og annað í spurningakeppni til þáttöku og nú verður að fylla þessi lið!

Fótboltakeppnin fer fram á morgun fimmtudag frá 10:15 - 14:30 og er Mímir í riðli tvö.


Klukkan 10:15 keppir Mímir við Anima 2 (Sálfræðin)
Klukkan 10:45 keppir Mímir við Hvarf (Efna-, lífefna- og efnaverkfræðin)
Klukkan 11:45 keppir Mímir við Politica 1 (Stjórnmálafræðin)

Komist Mímir svo í úrslit verður dregið í úrslit og keppt verður á föstudeginum.

Spurningakeppnin fer sömuleiðis fram á morgun frá 10:15 - 12:30 og er Mímir í riðli fjögur.


Klukkan 11:15 keppir Mímir við Mágus (Viðskiptafræðin)
Klukkan 12:00 keppir Mímir við Anima (Sálfræðin)
Klukkan 12:30 keppir Mímir við Fróða 2 (Sagnfræðin)

Úrslit fara svo fram á föstudeginum.

Ef þið sjáið ykkur fært að taka þátt þá endilega látið vita hér á síðunni!

Kveðja, Mímir í keppnisskapi

Skrifað 2.9.2009 kl. 15:24 af Mímir

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 169291
Samtals gestir: 53362
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 10:14:33