Ætlaru í vorferðina?

 já! já! já!

 æj ég er að vinna :(

 nei

 kannski

 ég get ekki beðið!!

 árshátíðin var æðisleg... ég mæti!


Sýna niðurstöður


 

Um okkur

Nafn:

Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum

Heimilisfang:

Árnagarður v/Suðurgötu

Kennitala:

610174-4269

Bankanúmer:

0137-26-011062

Tenglar

Blogg

28.8.2009

og þá er ballið byrjað!

Kæru vinir Mímis!

Nú er ballið svo sannarlega byrjað! Mímir vill sérstaklega bjóða nýnemana velkomna, það var gaman að sjá mörg ný andlit á kynningunni og vonandi skila þau sér sem flest til okkar!

Næsta vika verður sprengfull af skemmtilegri dagskrá en þá verða nýnemadagar Háskólans haldnir með pompi og prakt. Sem fyrr verða haldnar fótbolta og spurningakeppnir milli deilda og stefnum við á að hafa að minnsta kosti eitt lið í hvort. Keppnirnar verða á fimmtudag og föstudag og er skráning hér í athugasemdakerfinu. 3 verða í hverju spurningaliði en 7 í hverju fótboltaliði þótt endalaust pláss sé reyndar fyrir varamenn!

Föstudaginn 4. september verður Ferskmannaganga og biðjum við ykkur að taka eftirmiðdaginn og kvöldið frá en dagskrá verður auglýst nánar í næstu viku.

Á aðalfundi seinasta vor var ákvörðun um félagsgjöld lögð í hendur núverandi stjórnar og hefur verið ákveðið að hafa félagsgjöldin 3000 krónur fyrir árið. Það marg borgar sig að skrá sig því Mímisliðar hljóta ýmis fríðindi, til að mynda afslætti, frítt í vísindaferðir, niðurgreitt í Haustferð og árshátíð, fríar veigar á Mímisdjömmum og margt margt fleira! Þegar dæmið er reiknað í bjórgildum má sjá að fyrir 3000 krónur má kaupa 12,6 bjóra og svo má ekki gleyma allri skemmtuninni sem þessar 3000 krónur kaupa þér en hún eru vart mælanleg í krónum!

Næstu dagana munu stjórnarmeðlimir sitja í anddyri Árnagarðs og taka við skráningum í félagið en einnig er hægt að millifæra á reikning 0137-26-011062 kennitölu 610174-4269.

Að lokum viljum við minna á talninguna á sunnudaginn sem verður eflaust stórskemmtileg því hvar sem Mímisliðar koma saman í hóp, þar er partí!

Kveðja Mímir hressi

Skrifað 28.8.2009 kl. 15:11 af Mímir

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.8.2009

Mímir í fjáröflun

Nú er tekið að hausta og þó mörgum finnist það miður að sólin sé að hverfa er Mímir himinlifandi og getur ekki beðið eftir að gangar Árnagarðs fyllist af lífi, hamingju og kátínu íslenskunema! Framundan er spennandi dagskrá sem kynnt verður á næstu dögum. Munið að taka föstudagana frá!

Eins og flestir vita hefur verið hart í ári og hefur Mímir ekki farið varhluta af því. En Mímir grætur það ekki og hefur ákveðið að taka málin í sínar hendur. Til stendur að efla til fjáröflunar sunnudaginn næstkomandi og hvetur Mímir alla til að koma og leggja hönd á plóg!

Ætlunin er að fjölmenna í 10-11 verslun og telja vörur. Þáttakan er sjálfboðastarf en sem umbun fyrir hjálpina vill Mímir bjóða þeim sem koma og telja í að minnsta kosti 6 tíma frítt í hina glæsilegu og spennandi Haustferð en þeim sem telja í minnsta kosti 4 tíma 50% afslátt af ferðinni.
Mæting er klukkan átta á sunnudagsmorgun í 10-11 í Héðinshúsinu á Seljavegi (sama hús og Loftkastalinn). Ef fólk nær ekki að rífa sig á fætur svo snemma þá er alveg möguleiki að mæta níu eða tíu en best væri þó að mæta í bítið!

Endilega skráið ykkur hér að neðan og tryggið enn frábærari vetur!

Kv. Mímir úrræðagóði

Skrifað 25.8.2009 kl. 21:33 af Mímir

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.8.2009

Skiptibókamarkaður Mímis

Ef þig vantar námsbækur eða ert að selja þær þá endilega deildu því með okkur hinum. Í sameiningu skulum við finna nýtt heimili fyrir allar óvelkomnar námsbækur!

Kv. Mímir umhyggjusami

Skrifað 14.8.2009 kl. 14:17 af Mímir

Bein slóð á færslu

26 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 169456
Samtals gestir: 53396
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:49:25