Blogg
26.2.2009
Stórglæsihátíðarkvöldverðarskemmtun Mímis
Kæru félagar!
Gleðileg komandi mánaðarmót!
Það fer að líða að aðalkvöldi ársins, sjálfri árshátíðinni! Nú er hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þessa stórglæsilegu hátíð sem haldin verður á Hótel Sögu laugardaginn 7. mars.
Mímir hvetur alla til að tryggja sér miða í tæka tíð.
Mímisfélagar : 4.500 kr.
Aðrir : 5.500 kr.
Síðasti dagur miðasölu verður mánudaginn 2. mars og verðum við í Árnagarði frá kl. 10:00 - 13:20. Einnig er hægt að millifæra inn á reikning Mímis, reikningsnr. 0137-26-011062 og kt. 610174-4269. Þeir sem millifæra verða að senda kvittun með kennitölu sinni á mimir@hi.is. Miðinn verður þá tekinn frá og getið þið nálgast hann hjá okkur í vikunni.
Heiðursgestur kvöldsins er frú Sigríður Sigurjónsdóttir, dósent.
Veislustýrur verða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Gyða Erlingsdóttir.
Húsið opnar kl. 19:00 og verður fordrykkur í boði Mímis.
Borðhald hefst kl. 19:45.
Glæsilegt hlaðborð með úrvali forrétta, aðalrétta og eftirrétta!
Þeir sem vilja grænmetisrétt geta látið okkur vita og Hótel Saga mun koma til móts við þá.
Foréttir
Appelsínu marineraður skelfiskur
Basil og engifer marineruð bleikja
Salat með grilluðum ananas og engiferdressingu
Kjúklingastrimlar í sate sósu
Túnfiskur í maki með sesamfræjum
Nautaþynnur á klettasalati
Aðalréttir
Kryddjurta marinerað lambalæri
Ferskasti fiskur dagsins á grænmetist risotto
Kartöflugartín
Fersk grænmetisblanda
Rauðvínssósa
Eftirréttir
"Desert" kökur
Heimalagaður ís
Mímir býður upp á rauðvíns- /hvítvínsglas með matnum :)
Einnig verða góð tilboð á barnum!
Á meðan á borðhaldi stendur verður boðið upp á hin ýmsu skemmtiatriði. Dagskráin verður á þessa leið:
Fordrykkur
Ávarp formanns
Forréttur
Ávarp veislustjóra
Aðalréttur
Ávarp heiðursgests
Eftirréttur
Heiðursskeið nýnema
Minni karla
Kvennakór Mímis
Minni kvenna
Karlakór Mímis
Vítanefnd
Happdrætti
Dansað fram á rauða nótt
Eins og venja er verða fyrirpartýin fyrir árshátíðina tvö, annað fyrir fyrsta árs nema og hitt fyrir eldri nema og kennara. Mímir býður að sjálfsögðu upp á öl í fyrirpartýum. Glæsibifreiðar munu flytja veislugesti á hátíðarsvæðið. Fyrirpartý byrja kl. 17:00.
Fyrirpartý fyrsta árs nema : Suðurgata 121 - íbúð 313.
Fyrirpartý eldri nema og kennara : Reynimelur 34.
Mundu að geyma miðann því dregnir verða út vægast sagt stórglæsilegir happdrættisvinningar í lok skipulagðrar dagskrár!
Kvöldinu lýkur með sameiginlegum dansleik 10 nemendafélaga Háskóla Íslands í Súlnasal. Hljómsveitin Hitakútur leikur fyrir dansi.
Með hátíðarkveðjum og gleði hjarta, Mímir.
15.2.2009
Árshátíð Mímis
Árshátíð Mímis verður haldin með glæsibrag laugardaginn 7. mars á Hótel Sögu.
Miðar verða seldir hjá stjórn Mímis á 1. hæð í Árnagarði eftirfarandi daga;
Þriðjudaginn 17. febrúar 11:30 - 13:20
Miðvikudaginn 18. febrúar 11:30 - 13:20
Fimmtudaginn 19. febrúar 09:50 - 12:00
Föstudaginn 20. febrúar 09:50 - 12:00
(Þessar tímasetningar eru valdar í tilliti til verkefnaviku Hugvísindasviðs 23.- 28. febrúar).
Eins og venja er verða fyrirpartýin fyrir árshátíðina tvö, annað fyrir fyrsta árs nema og hitt fyrir eldri nema. Mímir býður að sjálfsögðu upp á öl í fyrirpartýum. Rúta mun svo koma í partýin og sækja veislugesti og flytja þá upp á Hótel Sögu. Frekari upplýsingar og staðsetningar verða birtar þegar nær dregur.
Á meðan borðhaldi stendur verður boðið upp á hin ýmsu skemmtiatriði og fastir liðir verða á sínum stað. Í ár ætlar Mímir einnig að standa fyrir happdrætti. Á hverjum keyptum miða verður númer og dregnir verða út vægast sagt stórglæsilegir vinningar!
Matseðill
Forréttir
Appelsínu marineraður skelfiskur
Basil og engifer marineruð bleikja
Salat með grilluðum ananas og engiferdressingu
Kjúklingastrimlar í sate sósu
Túnfiskur í maki með sesamfræjum
Nautaþynnur á klettasalati
Aðalréttir
Kryddjurta marinerað lambalæri
Ferskasti fiskur dagsins á grænmetis risotto
Kartöflugratín
Fersk grænmetisblanda
Rauðvínssósa
Eftirréttir
"Desert" kökur
Heimalagaður ís
Þeir sem vilja millifæra geta gert það en verða að senda kvittun með kennitölu sinni á mimir@hi.is. Greiðsluupplýsingar eru; kt. 610174-4269 og reikningsnr. 0137-26-011062.
Einnig er gott að skrifa í skýringu "árshátíð".
Látið ekki þennan viðburð framhjá ykkur fara!
Með allra bestu kveðjum, Mímir
8.2.2009
Vísindaferð
Listfræði hefur boðið okkur að koma með sér í vísindaferð næsta föstudag! Við ætlum að skella okkur með þeim í Ölgerðina Egil Skallagrímsson og verða spænskunemar einnig með í för. Mæting er í Ölgerðina kl. 17:00 upp á Grjótháls 7-11 (110 Reykjavík). Eftir vísindaferðina skellum við okkur í bæinn og sötrum fram á nótt!
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst, en skráningu lýkur á miðvikudaginn!! (þurfum að láta vita hversu margir ætla með).
Kv. Mímir athafnasami

