Blogg
31.1.2009
Grímubúningapartý!
Kv. Mímir sem langar verulega í veglega vinninginn.
26.1.2009
SagaFilm og Þorrablót
Það verður sko ekki dapurt hjá Mími næsta föstudag, 30. janúar! Við ætlum að hefja gleðina með því að fara í vísindaferð í SagaFilm kl. 16:55. Mjög mikilvægt er að fólk verði mætt fyrir þann tíma, því móttakan lokar á slaginu 17:00 og þá verður ekki aftur snúið! Mæting er auðvitað í höfuðstöðvar SagaFilm á Laugavegi 176 (gamla sjónvarpshúsið), 105 Reykjavík. Svo upp á 3. hæð fyrir kl. 17:00!
Það eru einungis 15 sæti í boði og skráning er nú þegar hafin í kommentakerfinu. Nú er að hafa hraðar hendur, pikka nafn sitt á lyklaborðið og ná í reiknivélina til að geta slegið inn réttan staðfestingarkóða ;) Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 29. janúar.
Eftir vísindaferð okkar í SagaFilm ætlar Mímir að halda sitt árlega þorrablót. Þar mun verða boðið upp á þorramat, brennivín og gífurlegt stuð! Fyrir þær gleðikonur og -menn sem ætla sér að gleðjast þokkalega, þá er upplagt að koma með sitt eigið öl. Fastir liðir verða á dagskrá, þ.e. spurningakeppni og fleira! Frítt er á þorrablótið fyrir Mímisliða - 500 kr. fyrir aðra.
Kv. Mímir sögufilma.
20.1.2009
Þorrablót
Næstkomandi föstudag ætlar Mímir að halda þorrablót fyrir brennivínsþyrsta íslenskunema. Frítt fyrir Mímisliða en 500 krónur fyrir aðra. Mímir kaupir þorramat og brennivín en þið komið með ykkar eigið öl.
Fastir liðir verða á sínum stað, svo sem glíma og spurningakeppni.
Skráið ykkur í kómentakerfinu svo við vitum hversu mikinn þorramat þarf að kaupa.
Koma svo!
Mímir
17.1.2009
Heiðni og kristni í forníslenskum bókmenntum og menningu
Sumarnámskeið við Árósarháskóla 1. til 15 júlí 2009.
Stúdentum í íslensku býðst að sækja um sumarnámskeiðið. Námskeiðið er opið bæði MA-nemendum og BA-nemendum sem hafa lokið hafa a.m.k. einu ári. ECTS-einingar fást fyrir námskeiðið og það er nemendum að kostnaðarlausu. Nemendur sem komast að geta sótt um Nordliks-styrk fyrir ferðakostnaði og uppihaldi. Námskeiðið er styrkt af norrænu ráðherranefndinni.
Allar nánari upplýsingar má fá hér: http://www.nordicstudies.com/summer_school_2009.html
Sótt er um á eyðublöðum sem þar er að finna. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
13.1.2009
Fyrsta vísindaferð ársins
Fyrsti viðburður Mímis á nýju ári "taka tvö".
Smá skipulagsbreyting! Í stað áðurnefnds spilakvölds ætlum við að fjölmenna í Ríkisútvarp allra landsmanna næstkomandi föstudag. RÚV hefur lofað okkur góðri skemmtun sem endar í stúdíóinu þar sem við fáum að fylgjast með Útsvari.
15 pláss eru í boði svo það er um að gera að skrá sig sem fyrst en skráningu lýkur um hádegi á föstudag.
Mæting er klukkan 18:00 Í RÚV Efstaleiti og um klukkan átta hefst Útsvar.
Vonandi láta sem flestir sjá sig!
Kv. Mímir sem saknar ykkar!
P.S. RÚV býður ekki upp á áfenga drykki!
3.1.2009
Bókamarkaður Mímis
Þeir sem vilja kaupa eða selja notaðar skólabækur geta sett inn athugasemd við þessa færslu með upplýsingum um hvað er í boði eða hvers er óskað - auk netfangs, símanúmers eða annarra samskiptaupplýsinga að eigin vali.

Kveðja,
Mímir bókamiðlari

