Blogg
27.11.2008
Frá Stúdentaráði
Kæru stúdentar Háskóla Íslands
1. desember er hátíðisdagur stúdenta og af því tilefni verður Stúdentaráð með ærleg hátíðarhöld úti í bæ og á Háskólatorgi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mætir, ljúffengar veitingar verða í boði og stórsveitin FM Belfast leikur fyrir dansi og stuði á Háskólatorgi. Stúdentar HÍ! Sameinumst og skemmtum okkur öll saman á deginum okkar.
Dagskráin lítur svona út 1. desember:
10:00
-Hátíðarsamkoma í hátíðarsal Aðalbyggingar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor, ávarpar stúdenta. Heitt kakó og kruðerí í boði.
-Halla Mia Ólafsdóttir, meðlimur Stúdentaleikhússins og stúdent flytur ljóð.
-Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er heiðursgestur.
11:00
-Stúdentar við Háskóla Íslands sameinast öðrum stúdentum og námsmönnum landsins á Austurvelli.
-DJ á svæðinu og menntaviti afhjúpaður. Menntavitinn hefur það hlutverk að lýsa okkur leið út úr kröggunum og minna ríkjandi stjórnvöld á mikilvægi menntunar á tímum sem þessum. Nánari upplýsingar á www.student.is/menntavitinn.
12:00
-Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er heiðursgestur á Háskólatorgi og ávarpar stúdenta.
-Háskólakórinn flytur lög.
-FM Belfast leikur fyrir dansi í boði FS.
-Hádegisverður í boði.
22.11.2008
Takk!
Upplestrakvöldið heppnaðist ótrúlega vel og er vonandi komið til að vera. Algjör metmæting náðist en yfir 70 manns komu til að hlýða á skáldin. Aldeilis glimrandi ;)
Kv. Mímir
17.11.2008
Upplestrakvöld
14.11.2008
Dagur íslenskrar tungu
Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum og ritlist, stendur fyrir hátíðardagskrá í tilefni af degi íslenskrar tungu, sunnudaginn 16. nóvember 2008.
Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu og hefst kl. 16:00.
Fundarstjóri er Kristín Þóra Pétursdóttir.
Dagskrá:
16:00
Íslensk tunga er ekkert múrmeldýr
Ármann Jakobsson
16:10
Hátækniiðnaðurinn íslensk málfræði
Anton Karl Ingason
16:30
Elsku Elísa
Hildur Knútsdóttir les smásögu
16:35
Nokkur orð um mál og vald
Katrín Jakobsdóttir
Tónlistaratriði
Margrét Guðrúnardóttir
17:00
Hlé - Kaffi.
17:15
Íslensk málstefna: Leitin að aðalatriðunum
Haraldur Bernharðsson
17:30
Magnús Sigurðsson les upp úr nýrri ljóðabók sinni
17:40
Allt annað mál! Nokkur orð um annarsmálsfræði
María Anna Garðarsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir
18:00
Danmerkurfarar - Útrás og víðáttubrjálæði íslenskunnar
Ásta Kristín Benediktsdóttir
18:20
Tónlistaratriði
Margrét Guðrúnardóttir
18:30
Dagskrárlok - Léttar veitingar í boði.
10.11.2008
Eitt og annað
Á næstunni verður farið að vinna í kennsluskrá háskólaársins 2009-2010. Óskað hefur verið eftir tillögum frá nemendum í íslensku um hvað þeir vilji að verði á boðstólnum. Það væri mjög gagnlegt að fá einhverjar hugmyndir frá nemendum um námskeið sem þeir hefðu áhuga á. Það geta bæði verið námskeið sem hafa verið kennd áður og eins ný námskeið. Einnig er fínt að fá hugmyndir um kennara en þeir mega bæði vera innan kennarahóps greinarinnar og eins einhverjir utanaðkomandi sem ykkur sýndist gagnlegt að fá í kennslu. Allar hugmyndir eru vel þegnar, þótt ekki sé hægt að lofa því að allar óskir verði uppfylltar. Sendið póst á mimir@hi.is fyrir miðvikudaginn 19. nóvember og segið ykkar skoðun.
Næstkomandi fimmtudag, þann 13. nóvember, munu nemendur í námskeiði um Sigfús Daðason flytja fyrirlestra í ReykjavíkurAkademínunni kl. 17:15. Öllum er velkomið að mæta þangað og hlusta á samnemendur sína sem hafa sitthvað áhugavert að segja.
Sunnudaginn 16. nóvember mun Mímir svo standa fyrir hátíðadagskrá á Degi íslenskrar tungu. Hefst hátíðin kl. 16:00 í stofu 201 í Árnagarði. Léttar veitingar verða í boði. Dagskráin sjálf mun berast ykkur von bráðar.
Að lokum minnum við á heimasíðu allra stúdenta, www.student.is. Þar er ýmislegt að finna sem stúdentar hafa bæði gagn og gaman af.
Kveðja,
Mímir
1.11.2008
Breytingar og leikhús
Vegna efnahagsástands þjóðarinnar þessa daganna hafa orðið smávægilegar breytingar á tilboðum Mímisliða á Glaumbar. Þessar breytingar koma vegna verðhækkanna frá ölframleiðendum og eru þær að jafnaði frekar háar. Glaumbar hefur nú hækkað bjórdílinn okkar úr 390 krónum upp í 450 krónur og skot hafa hækkað í sama hlutfalli.
Glaumbar vill hinsvegar bjóða upp á nýjan díl til að gleðja okkur! Í stað þess að kaupa bjórinn á 390 krónur einungis á föstudögum og aðra daga á venjulegu verði, þá munum við núna fá bjórinn á 450 krónur ALLA daga - gegn framvísun nemendafélagsskírteinis. Mjög flott því bjórinn er á 750 krónur alla jafna! Minnum einnig á fimmtudagskvöldin á Glaumbar, afar bjórvænir tónleikar og frítt inn :)
Næsta föstudag 7. nóvember ætla þeir sem pöntuðu miða á sýninguna Hart í bak að skella sér í leikhús. Sýningin byrjar kl. 20:00 og mun leikstjórinn, Þórhallur Sigurðsson, spjalla við Mímisliða eftir sýninguna. Þannig að ekki rjúka út úr salnum strax að lokinni sýningu ;) Þeir sem ekki hafa sótt miðana sína verða að gera það fyrir 2. nóvember (sem er á morgun, sunnudag)!!
Kv. Ykkar Mímir - og munið að jafnvel litlar stjörnur skína í myrkri.

