Blogg
27.10.2008
Vísó #5 Forlagið
Næstkomandi föstudag, þann 31. október, fer Mímir í vísindaferð í Forlagið. Mæting er kl. 17:30 í húsnæði Forlagsins að Bræðraborgarstíg 7. Við höfum aðeins takmarkaðan fjölda sæta svo fyrstir koma fyrstir fá en að venju ganga Mímisliðar fyrir.
Hlökkum til að sjá ykkur eldhress að vanda.
Kveðja,
Mímir bókaormur
20.10.2008
Kraptakvöld
Næsta föstudag, 24. október, er komið að hinu árlega Kraptakvöldi Mímis. Kraptakvöld er afar skemmtilegt skemmtikvöld fyrir skemmtilega Mímisliða og um leið mjög hefðbundið hefðakvöld fyrir hefðbundna Mímisliða.
Að þessu sinni verður að það haldið í litlum sal í Árbænum, Hraunbæ 102b (Sjálfstæðishús).
Gleðin byrjar klukkan 20:00. Eitt og annað létt matarkyns verður í boði og dagskráin hefðbundin, þ.e. ávarp nýnemafulltrúa, söngur, leikir, botnaðar vísur og síðast en ekki síst Andvarpið, en öndinni verður varpað til kennara sem þykir verðskulda viðurkenningu nemenda.
Frítt inn fyrir Mímisliða, 1000 kr fyrir aðra.
Bjór og vín verður til sölu fyrir klink. Einnig verður hægt að kaupa sötr-kortin góðu á afar hagstæðum kjörum þ.e. 5 drykki fyrir 1000 krónur.
Engin skráning - mætum bara öll í kraptastuði!
Kveðja,
Mímir kraptakall
P.S. Skráning í leikhús(vísinda)ferð þann 7. nóv. stendur enn yfir í færslunni fyrir neðan!
15.10.2008
Hart í bak
Sæl öll
Nú ætlar Mímir að lífga upp á skammdegið og skella sér í leikhús föstudaginn 7. nóvember. Við ætlum að sjá leikritið Hart í bak sem sýnt er á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu en hér getið þið lesið ykkur betur til um verkið : http://www.leikhusid.is/?PageID=787
Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir en Mímisliðar hafa forgang. Aðgangseyrir er einungis 1500 krónur og sennilega verður gert eitthvað meira úr ferðinni, vonandi umræður við leikara eða leikstjóra á eftir og kannski skoðunarferð um leikhúsið á undan sýningunni.
Við höfum aðeins takmarkaðan fjölda miða og vegna þess að miðar eru óðum að seljast upp á þessa spennandi sýningu biðjum við ykkur um að skrá ykkur hér í kommentakerfinu fyrir næsta miðvikudag.
Gleymum kreppunni og njótum íslenskra leikverka.
Kv. Mímir listunnandi
P.S. Kraptakvöld sem haldið verður þann 24. október verður auglýst fljótlega, takið daginn frá!
7.10.2008
Októberfest
Hlökkum til að sjá ykkur öll í hörkustuði.
Kveðja,
Der Mímir

