Blogg
9.5.2008
Próflokafagn Mímis!
Nú fer að líða að próflokum og þá er tími til að fagna!
Mímir ákvað að ná til sem flestra og kom sér einnig upp síðu á MySpace. Geri aðrir betur! Slóðin er: www.myspace.com/mimir_hi og endilega bætið ykkur í vinahópinn!
Próflokapartí og jafnframt lokahóf Mímis verður haldið föstudaginn 16. maí kl. 20:00 hjá Eyrúnu, Eggertsgötu 24, íbúð 105.
Mímir mun bjóða upp á öldreitil en mælir með því að fólk taki með sér eigin veigar.
Þetta sama kvöld verður Pallaball á Nasa og hefst það kl. 23:00 og því tilvalið að slá þessu tvennu saman.
Mímir verður líka sífellt tæknivæddari og hefur nú komið sér upp síðu á smettabókinni Facebook og vill ólmur eignast sem flesta vini.
Mímir ákvað að ná til sem flestra og kom sér einnig upp síðu á MySpace. Geri aðrir betur! Slóðin er: www.myspace.com/mimir_hi og endilega bætið ykkur í vinahópinn!
Kveðja,
Mímir í partístuði.
7.5.2008
Afsláttur á París Lounge
Tekist hefur að ná samkomulagi við skemmtistaðinn París Lounge um afslætti á barnum fyrir nemendur Háskóla Íslands. Tilboðið hefst þann 15. maí og gildir um óákveðinn tíma.
Flettingar í dag: 59
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 168663
Samtals gestir: 53173
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 18:47:28

