Ætlaru í vorferðina?

 já! já! já!

 æj ég er að vinna :(

 nei

 kannski

 ég get ekki beðið!!

 árshátíðin var æðisleg... ég mæti!


Sýna niðurstöður


 

Um okkur

Nafn:

Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum

Heimilisfang:

Árnagarður v/Suðurgötu

Kennitala:

610174-4269

Bankanúmer:

0137-26-011062

Tenglar

Blogg

17.4.2008

Ný stjórn

Aðalfundur Mímis var haldinn í gær, 16. apríl, lögum samkvæmt. 
Lögð var fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar með tilheyrandi umræðum.
Lagabreytingar voru engar að þessu sinni.
Þá fóru fram kosningar í embætti. Nýja stjórn Mímis skipa:

Formaður: Kristín Þóra Pétursdóttir
Gjaldkeri: Helga Björg Ragnarsdóttir
Ritari: Eyrún Eva Haraldsdóttir
Skemmtanastjóri: Árni Geir Úlfarsson
(Nýnemafulltrúi verður kosinn að hausti) 

Önnur embætti (ritstjórn, mímisþingsnefnd, námsráðgjafar) eru vel mönnuð, þau má sjá undir síðunni nefndir.

Mímir lætur verðbólgu ekki á sig fá en félagsgjöld verða óbreytt á næsta ári þ.e. 2.500 kr. 
Undir liðnum önnur mál var ýmislegt rætt svo sem kynningamál íslenskudeildar í samstarfi við kennara.
Að lokum fór fram formleg innsetning nýrrar stjórnar og útsetning þeirrar gömlu.

Nú tekur við prófatörn en séð verður til þess að próflokum verði fagnað rækilega. Þangað til... gangi ykkur vel!

Kveðja, Mímir löghlýðni.

Skrifað 17.4.2008 kl. 11:36 af Mímir

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.4.2008

Aðalfundur Mímis

Nú líður að lokum hjá okkur í vetur og það er kominn tími til að kjósa nýja stjórn sem sér til þess að stuðið verði enn meira næsta vetur. Aðalfundur verður haldinn á Celtic Cross á miðvikudaginn, 16. apríl kl. 20:00. Skoðið síðuna nefndir til að sjá hvaða embætti eru í boði.

Við hvetjum alla til að mæta og kjósa og/eða bjóða sig fram.

Sjáumst hress á miðvó!
Mímsi sem er hér

Skrifað 12.4.2008 kl. 19:38 af Mímir

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 169456
Samtals gestir: 53396
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:49:25