26.01.2012 14:29
Seinkun á upplestri
Elsku Mímarar og aðrir góðvinir
Því miður þurfum við að seinka upplestri kvöldsins um 30 mínútur vegna afboðunar hjá einum höfundanna.
Lesturinn mun því hefjast klukkan 19.30.
Hlakka til að sjá sem allra flesta.
Því miður þurfum við að seinka upplestri kvöldsins um 30 mínútur vegna afboðunar hjá einum höfundanna.
Lesturinn mun því hefjast klukkan 19.30.
Hlakka til að sjá sem allra flesta.
Skrifað af Mímir
24.01.2012 09:41
Nýársbókaupplestur Mímis 2012
Heil og sæl elsku Mímrar!
Okkur langar að bjóða ykkur að koma og eyða góðri kvöldstund
með okkur næstkomandi fimmtudagskvöld í stofu 201 í Árnagarði og hlusta á
bókaupplestur höfunda á nýjustu bókum sínum.
Staðfestir höfundar eru :
Anton Helgi Jónsson - Tannbursti skíðafélagsins og fleiri
ljóð
Auður Ólafsdóttir - Sálmurinn um glimmer
Haukur Ingvarsson - nóv.76
Ragna Sigurðardóttir - Bónusstelpan
Enn er verið að bíða eftir svörum frá fleiri höfundum svo að
þetta verður vafalaust þjóðsögulegt!
Upplesturinn mun hefjast klukkan 19.00 og standa yfir þar til gleðinni er
lokið, en þó ekki lengur en til 22.00.
Vonandi sjáumst við sem flest þar sem þetta verður
einstaklega ánægjulegt og mikið fjör!
Bókmenntakveðjur,
Mímir.
Skrifað af Mímir
16.01.2012 19:48
Skiptibókamarkaður Mímis!
Sælir kæru Mímisliðar!
Nú hefur verið búin til aldeilis sérstaklega flottur hópur á Facebook-inu sívinsæla sem ber nafnið Skiptibókamarkaður Mímis! Þar geta Mímisliðar auglýst bækur til sölu jafnt sem auglýst eftir bókum sem vantar. Hópurinn er opinn svo hver sem er getur skráð sig í hann!
http://www.facebook.com/groups/138147442968750/
Einnig minnum við ykkur hin sem eru ekki enn skráð í Mímishópinn flotta á Facebook,
http://www.facebook.com/groups/12977258723/10150532939883724/
Þess má einnig geta að skortur er á fimm binda verkinu Íslensk bókmenntasaga og safninu Íslensk tunga, en báðar eru uppseldar hjá útgefanda!
Svo hjálparkall er sent til ykkar þeirra sem eigið þessar bækur og eruð tilbúin til þess að selja eða lána eintökin. Þau ykkar sem sjáið ykkur fært að gera það og eruð ekki með facebook aðgang, megið endilega tjá ykkur um það í athugasemdakerfinu hér að neðan.
Með fyrirfram þökk og gleðikveðjum,
Mímir.
Skrifað af Mímir
10.01.2012 21:23
Vísó í NOVA
Nú er glatt yfir Mími!
Fyrsta vísindaferð annarinnar er á föstudaginn.
Okkur er boðið að koma í Nova og ferðin hefst kl 18:30 og henni lýkur um 20:30.
Vísindaferðir í Nova hafa hlotið einróma lof þeirra sem hafa sótt þær
svo það er um að gera að skrá sig strax svo þið fáið sæti í þessari snillaferð.
Skráning fer að vanda fram í athugasemdakerfinu hér að neðan.
Mímir

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 73
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 253849
Samtals gestir: 74490
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 15:31:32